HLÉ
27. janúar 2008 klukkan 17:06
Jæja, fyrsta atriði eftir hlé í gangi og ég er ekki frá því að krakkarnir hafi aldrei verið jafn góð. Þau eru bara frábær og ég er hérna eins og stolt 22 barna móðir baksviðs að horfa á þau. Ég á þau öll!
Svo bara sagði ég þeim að massa seinni hlutann jafn vel og þann fyrri!
Hreindís

BACKSTAGE!!!
27. janúar 2008 klukkan 16:16
Hæ hó
Hreindís hér, baksviðs á lokasýningunni á Öskubusku. Núna eru nákvæmlega 10 mínútur síðan sýningin byrjaði og ég sit hérna á ,,skrifstofunni" minni baksviðs. Voða huggulegt og krakkarnir fóru alveg svakalega vel af stað. Snæja kom af sviðinu og sagði: ,,Hugsaðu þér, þetta er í síðasta skipti sem við syngjum þetta lag á sviðinu!". Birtu hefur aldrei fundist jafn gaman að byrja sýninguna en Tanja greyið er nett stressuð hérna við hliðina á mér :P
Þetta verður frábær sýning, salurinn er spenntur og svaraði krökkunum vel í upphafsatriðinu.
Adios, au revoir, chao chao, so long baby...
Hreindís
P.S. Drekaskógskrakkarnir biðja að heilsa og ég hendi kannski einu bloggi inn í hléi... :P

EKKI MISSA AF ÞESSU!
24. janúar 2008 klukkan 10:52
LOKSÝNING Á SÖNGLEIKNUM ÖSKUBUSKA
STÓRI SALURINN Í AUSTURBÆ
SUNNUDAGINN 27. JANÚAR KL. 16
MIÐASALA Í SÍMA 551-4700 MILLI KL. 13 OG 17 OG Á WWW.MIDI.IS
Smá update mála hjá genginu!
23. september 2007 klukkan 15:35
Jæja
Þá er best að skella inn smá update af því sem við höfum verið að bralla, Drekaskógskrakkarnir.
Krakkarnir eru sem sagt næstum öll ennþá í Barna- og unglingaleikhúsinu, bara Selma og Agnes aðstoðarleikstjóri voru ekki með í Öskubusku sem við erum að vinna í núna. En auðvitað eru fleiri krakkar líka, það bættist í hópinn fyrir Jólasýninguna í fyrra og aftur núna. Fyrir utan Drekaskógsgengið eru í sýningunni þessi krakkar: Marta, Malen og Valgarð sem voru líka í Jólafárinu og svo Svanhildur, Alma, Auður, Ásdís, Grettir og Kolbeinn sem bættust glæný í hópinn núna í sumar og smullu strax stórkostlega inn í hópinn. Alltaf gaman að fá svona kraftmikla og góða viðbót í hópinn. Heldur gömlu kempunum á tánum :p
Forsýningin á menningarnótt gekk frábærlega vel og var alveg stútfullt út úr dyrum í Tjarnarbíó. Það þurfti að vísa fólki frá og talsvert var setið á gólfinu og í stiganum. Eftir það tókum við okkur pásu frá æfingum en mættum hress til leiks aftur 4. sept og þá fór allt á fullt. Fleiri lög bættust inn og talsverðar breytingar á handritinu. Krakkarnir tóku þessu með stóískri ró og gekk mjög vel að venja sig við breytinga rá handritinu. Frumsýningin var svo 15. sept og gekk ROSALEGA vel fannst ykkur ekki krakkar? Þið stóðuð ykkur öll eins og hetjur og við vorum alveg svakalega stolt af ykkur.
Síðan á frumsýningu er ein sýning búin og gekk hún líka ofsalega vel.
Næsta sýning er svo laugardaginn 29. september kl. 14. Þumalputtareglan með sýningartíma er að við sýnum á laugardögum kl. 14 eins legni og aðsókn endist.
MIÐA MÁ NÁLGAST Í AUSTURBÆ MILLI KL. 13 OG 17 EÐA Í SÍMA 551-4700
Elsku krakkar mínir til hamingju með hvað allt hefur gengið vel hingað til, ég er alveg að rifna úr stolti yfir að eiga pínulítið í ykkur!
Hreindís Ylva
Aðstoðarleikstjóri / sýningarstjóri Öskubusku í Austurbæ

Söngleikurinn Öskubuska
22. júlí 2007 klukkan 14:21
Ef það eru einhverjir sem eru að fylgjast með þessari síðu þá er hérna smá update á því sem Drekaskógskrakkarnir eru að gera...
Allir nema Selma og Katrín Ásmunds. taka þátt í söngleiknum Öskubuska sem verið er að setja upp í Tjarnarbíó/Austurbæ. Selma sá sér því miður ekki fært að vera með vegna þess að hún ætlar að einbeita sér að skólanum núna þar sem hún er að fara í 10. bekk og Katrín Ás. er svo mikið erlendist í sumar að hún hefur ekki tækifæri til að vera með. Við Agnes eru reyndar orðnar ,,of gamlar" til að leika í sýningum hjá Barna- og Unglingaleikhúsinu en ég er aðstoðarmanneskja útlitshönnuðar og leikstjóra en Agnes hefur ekkert látið sjá sig vegna mikilla anna, en hún er á leið til London í ensku- og leiklistarskóla í þrjár vikur þannig að við verðum komin ansi langt með sýninguna þegar hún kemur til baka. En við vorum auðvitað orðnar of gamlar áður en Drekaskógur (fyrsta sýningin) byrjaði en vorum fengnar til að vera með og höfum svo verið aðstoðarleikstjórar og ég sýningarstjóri og Agnes proppsarir og fleira síðan...
Nú ég held að þetta sé svona það helsta, annars erum við öll voða hress. Nýbyrjaðar æfingar á Öskubusku og búið að deila út hlutverkum. Allir sáttir og spenntir held ég. Krakkarnir eru mikið að þeytast um alla heima og geima í sumarfríum þessa dagana og við reynum að vinna með það eins og við getum. Nokkur ný andlit eru væntanleg í hópinn en Addi og Bjartur sem voru með í Jólafárinu eru búnir með 10. bekk svo þeir eru orðnir of gamlir fyrir Barna- og Unglingaleikhúsið. Ragnheiður sem einnig var í Jólafárinu ætlar ekki að vera með heldur en Marta og Malen mæta sterkar til leiks aftur. Um helgina voru haldnar prufur fyrir nýja krakka, en það eru krakkar sem hafa verið á námskeiðum hjá Agga sem við Agnes höfum verið að aðstoða við. Ég sá fyrri daginn af prufunum og lofaði hann mjög góðu. Þeir krakkar sem verða valdir verða svona nokkurs konar kór eða ensemble eins og það heitir á enskunni. Þau taka þátt í öllum hópsenum, leika stelpur á balli og fleira. Síðast en ekki síst mun Svanhildur loksins bætast í hópinn en hún átti að vera í Drekaskógi og ég veit ekki alveg af hverju hún kom ekki í Jólafárið en hún allavega bætist í hópinn núna í næstu viku. Þetta verður því stór og myndarlegur hópur sem stígur á stokk í Öskubusku.
Látum þetta duga í bili.
Hreindís, aðstoðarmanneskja útlitshönnuðar og leikstjóra söngleiksins Öskubusku (talandi um langan titil! :D)

Grillið!
15. júlí 2007 klukkan 12:33
GRILLVEISLAN!
Hvenær? Sunnudaginn 15. júlí
Hvar? Amsturdam 6, Mosfellsbæ, rétt hjá Reyjalundi, kort á www.mos.is
Klukkan hvað? Klukkan 18
Koma með: Pulsu eða hamborgara á grillið og 300 kr. til að borga upp í meðlæti og gos sem við Agnes munum sjá um að redda! Finnlandsfara ATH. munið að koma með myndir frá ferðinni!
Munið eftir góða skapinu!

Kíkið á emailin !
30. maí 2007 klukkan 16:01
Allir að kíkja inn á þau email sem foreldar ykkar gáfu upp á foreldrafundinum! S.s. látið foreldra ykkar kíkja inn á sín email! Þar bíður ykkar skemmtileg orðsending!
Hreindís og Agnes
Hreindís og Agnes
Myndir?
28. maí 2007 klukkan 19:49
Jæja börnin góð!
Við Bryndís höfum tekið af skarið og erum búnar að setja myndirnar okkar inn á síðuna - njótið vel!
Ég var að spá, eiga ekki fleiri myndir til að setja inn á síðuna. Endilega ef þið eruð með myndasíður að uploada myndunum og smella þeim svo inn á síðuna. Ef þið eruð ekki með myndasíðu þá getið þið sent mér myndirnar á hreindisylva@gmail.com og ég get hent þeim inn á síðuna. Hlakka til að sjá myndir!

We Will Rock You
23. maí 2007 klukkan 14:41
WE WILL ROCK YOU !!!

Nemendur og kennarar í Tónlistarskóla FÍH settu upp tónleikauppfærslu af söngleiknum We Will Rock You eftir Queen og Ben Elton síðasta febrúar við svo góðar undirtektir að ákveðið hefur verið að hafa 2 aukasýningar
Fimmtudaginn 24. maí kl. 20.00
Föstudaginn 25. maí kl. 18.00
Söngleikurinn á að gerast árið 3000 þar sem öll tónlist er bönnuð og fjallar um
að finna tónlistina að nýju. Öll helstu lög Queen eru þarna í nýjum búningi.
Hljómsveit og kór samanstendur af kennurum og nemendum. Hljómsveitar- og
kórstjóri er Vignir Stefánsson. En hann hefur spilað mikið úti meðal annars í
söngleiknum Chicago, í X-factor hérna heima og í Footloose. Listrænir
stjórnendur og raddþjálfarar eru söngkonurnar Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir og
Kristjana Stefánsdóttir.
Nánari upplýsingar má finna á www.nefid.bloggar.is
Sýningar verða í sal skólans, Rauðagerði 27. Fyrir þá sem rata ekki er hér smá leiðarlýsing.
Þegar keyrt er út Sogaveginn þá er beygt niður Breiðagerði sem er mjög lítil gata og þvert á hana liggur Rauðagerði. FÍH er staðsett fyrir miðri götu við hliðina á Kælitækni.
Vona að þið komið sem flest. Endilega reynið að hópast sem flest á sýninguna á morgun klukkan átta. Hlakka til að sjá þá sem komast (sakna ykkar svaka mikið!).
Held að það kosti 1000 kr. inn og miðar eru keyptir við innganginn svo komið tímanlega!
Knús, Hreindís

Dagur 6 - Helsinki
22. maí 2007 klukkan 11:54
Hæhæ. Nu þegar við erum öll komin heim ákvað ég að klára að segja fra siðasta deginum.
Við vöknuðum snemma og fórum i veglegan morgunmat á þessu glæsilega 4 stjörnu hóteli sem við vorum a. Eftir það söfnuðust allir saman í lobbíinu og við gengum af stað til að fara í H&M. Í Helsinki er rosalega gaman að versla og margar flottar buðir. Við eyddum okkar tíma þarna a þessari göngugötu og i verslunarmiðstöð sem var eftst a þeirri götu. Eftir fyrsta session af buðarrápi forum við a McDonalds og svo upp a hotel að kveðja Agga, Marian, Beddy (mömmu Snæju) og yngstu krakkana - Arna, Snæju, Bryndísi, Birtu og Oddlaugu (dottur Svanhvitar). Þau foru nefnilega heim með öðru flugi. Það var nu ekki laust við að við værum strax farin að sakna þeirra þegar billinn keyrði i burtu enda yndisleg öll með tölu. Mer skilst að traffikin i Helsinki og röðin a flugvellinum hafi verið svo mikil að þau hafi verið a tæp a að ná fluginu, en það slapp nu all - rett fyrir horn.
En við heldum aftur i verslunarmiðstöðina. Strakarnir höfðu eytt misgafulegum upphæðum i misgáfulega hluti i einhverri svona hokus pokus buð fyrr um daginn og hledu aftur þangað og for Yuri með þeim. En við stelpurnar forum allar að versla meira held eg - enda aldrei of oft sem maður kemst i H&M. Við hittumst svo rett fyrir þrju a hotelinu eftir sma misskilning um hvar við ættum að hittast voru allir komnir upp a hotel. Svanhvit og Andri ljósamaður höfðu farið með Selmu og Viktoriu i sendiraðið vegna þess að þær fundu ekki vegabrefin sin og þvi var reddað þar og þær fengu braðabirgðaskirteini. Svo heldum við ut á völl.
Mer personulega fannst ekki löng bið til að tjekka sig inn og við vorum mjög fljotlega komin inn i flugstöðina. Það þurftum við að biða frekar lengi vegna örlitillar seinkunna a fluginu. Fra Helsinki flugum við til Kaupmannahafnar. Þar biðum við i tvo klukkutima og borðuðum spaghetti a meðan við biðum og rafuðum svo bara um.
En flugið fra Kastrup for a rettum tima og við vorum komin a tilsettum tima, 23:30. Þaðan forum við i frihöfnina, naðum i töskurnar og svo bara beint að knusa mömmu og pabba. Eg held að þo að ferðin hafi verið frabær i alla staði se alltaf gott að koma heim - sammala krakkar?
En takk, takk þeir foreldrar og vinir sem fylgdust með okkur i gegnum þessa siðu. Endilega krakkar sendið mer myndir sem þið hafið tekið eða setjið inn a myndasiðu svo að eg geti sett þær herna inna. Eg natturulega eignaðist ekki myndavel fyrr en i gær svo að minar myndir eru bara fra ferðalaginu i gær.
Takk fyrir mig
Hreindis Ylva